Litningarannsókn án inngrips (NIPT)
Livio býður upp á litningarannsókn án inngrips (NIPT, Non-Invasive Prenatal Testing) frá 10. viku meðgöngu.
NIPT er blóðrannsókn sem metur líkur á algengustu litningafrávikum hjá fóstri. Rannsóknin er framkvæmd með blóðsýni úr móður og felur því ekki í sér neina aukna áhættu fyrir fóstrið.
Prófið greinir meðal annars frá auknum líkum á frávikum í litningum 13, 18 og 21, auk frávika í kynlitningum. Komi fram niðurstaða sem bendir til litningafráviks er vísað áfram í frekari greiningu og erfðaráðgjöf á Landspítala.
Blóðsýnin eru send til erfðafræðirannsókna á Karolinska háskólasjúkrahúsið í Stokkhólmi og niðurstöður liggja að jafnaði fyrir innan 10 virkra daga.
Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.
Sérfræðilæknar Livio
Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.
Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.
Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.